Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mismunandi niðurstöður skoðanakannana Gallup og Stöðvar 2.
1.2.2014 | 20:59
Ég var að horfa á fréttatíma Stöðvar 2 og síðan fréttatíma Rúv þar á eftir. Þar voru birtar niðurstöður tveggja skoðanakannana var sú fyrri unnin af stöð tvö 23 janúar en hin var unnin af Gallup 3 til 29 janúar. Var fréttin á Stöð 2 öllu neikvæðari í garð ríkisstjórnarinnar, sagt að fylgi hennar hafi dregist saman að fylgi Framsóknar væri 15,1% og fylgi Sjálfstæðisflokks hafi reyndar styrkst og væri rúm 30%. Í fréttatíma Rúv var hins vegar sagt að fylgi ríkisstjórnarinnar hafi styrkst nokkuð frá síðustu skoðanakönnun sem gerð var fyrir mánuði síðan. Mældist fylgi Framsóknar 18,4% og Sjálfstæðisflokks 26,9%. Niðurstöður fyrri skoðanakönnunarinnar má að nokkru útskýra vegna þess að ríkisstjórnin var þá ekki búin að birta niðurstöður starfshóps um afnám verðtryggingar á húsnæðislánum.
Mér finnst að það sé töggur í Framsóknarflokknum og háttvirtum forsætisráðherra Sigmundi Davíð. Hann er að koma í gegn stórkostlegum aðgerðum sem eru niðurfelling höfuðstóls húsnæðislána og aðgerðir til að minnka vægi verðtryggðra lána og hugsanlega seinna að banna þau alfarið. Ég er reyndar flokksmaður í Sjálfstæðisflokknum, en mér finnst ástæða til að styðja við bakið á Sigmundi og flokk hans því mér finnst hann og flokkur hans vera að standa sig vel. Gott fyrir Bjarna og flokk hans að hafa flokk í stjórnarsamstarfi sem er svona ötull við að koma baráttumálum ríkisstjórnarinnar í framkvæmd. Og ötul andstaða flokksins gegn ESB aðild kemur sér líka vel.
Ég met Bjarna líka mjög mikils, finnst hann einbeittur og útsjónarsamur að halda um stjórnartaumana í fjármálum ríkisins. Að koma til móts við ýmsar þarfir í þjóðfélaginu eins og að auka fjárveitingar til Landspítalans um 3 milljarða eftir langan niðurskurðartíma, að lækka ýmis gjöld til fólksins á landinu um 460 milljarða, en á sama tíma skila hallalausum fjárlögum. Að sjálfsögðu eru þeir Bjarni og Sigmundur sem og aðrir ráðherra ríkisstjórnarinnar nýliðar í stjórnarsetu, hafa þeir þurft að þreifa sig áfram í ýmsum málum en hafa að ég tel fundið farsælar lausnir á úrlausnarmálum að lokum.
Kær kveðja að sunnan.
![]() |
Stjórnarflokkar með aukið fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2014 kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þingmaður vinstrihreifingarinnar - Græns framboðs, Ögmundur Jónasson sagði í dag í sérstakri umræðu um skattaundirskot, að auka þurfi skattaeftirlit og að slíkt eftirlit mundi skila sér í auknum tekjum fyrir ríkissjóð. Hann sagði ennfremur að auka þurfi siðferði og skilning landsmanna á þessum málum.
Mikið eru þessi orð Ögmundar orð í tíma töluð og ég er honum þarna hjartanlega sammála. Koma þarf í veg fyrir skattaundirskot og svartai atvinnustarfsemi með öllum tiltækum ráðum, því slíkt grefur undan velferðarkerfinu og spillir fyrir okkur sem vinnum okkar vinnu og teljum samviskusamlega fram til skatts. Ég vil líka bæta við að nauðsynlegt er einnig að koma í veg fyrir kennitöluflakk fyrirtækja, þar sem eigendur fyrirtækja hafa skilið eftir sig sviðna jörð með gjaldþroti fyrirtækja sinna, þar sem margir skaðast af, bæði fyrirtæki og einstaklingar. En sömu fyrirtækjaeigendur geta síðan stofnað ný fyrirtæki með nýrri kennitölu.
Ögmundur sagði einnig að auka þurfi siðferðisvitund fólks meðal annars með því að hafa kennslu um rétt siðferði í skattamálum í skólum. Og hann sagði einnig að sjónvarpið gæti komið þarna ínn í með því að henda eins og einum ofbeldisþætti úr dagskrá sinni á hverju kvöldi og haft þar "kennslu í samhenginu á milli skatta og velferðar". Bætti hann við "að það myndi ekki sjá högg á vatni , að það væri nóg blóðbaðið þrátt fyrir það."
Þessum síðustu orðum Ögmundar er ég einnig hjartanlega sammála. Það er nóg af ljótu efni á sjónvarpsstöðvunum. Er þar ofbeldi sýnt í miklum mæli og margt ósiðlegt eins og of nánar myndir af ástarlífi fólks og mikið er gert út á nekt kvenna, og eru þær oft sýndar einum of fáklæddar í ýmsum kvikmyndum, þáttum og auglýsingum, einkum erlendum auglýsingum.
Ég er þér hjartanlega sammála, Ögmundur hvað siðferði og eftirlit með skattlagningu varðar.
Kær kveðja.
![]() |
Vill efla siðferðið í skattamálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2014 kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Gleðiefni að ekki verði skorið niður í barnabótum.
10.12.2013 | 16:45
Það er mikið rætt um það þessa dagana í fjölmiðlum og meðal almennings til hvaða aðgerða ríkisstjórnin muni grípa til þess að afla fjármuna til reksturs Landspítalans og til tækjakaupa og til að styðja við heilbrigðiskerfið. En eins og kunnugt er hafði Ríkisstjórnin það jafnvel til athugunar að skerða barna og vaxtabætur til að hægt væri að auka framlög til Landspítalans.
Í dag tjáði háttvirtur Forsætisráðherra sig um að hann geri ekki ráð fyrir að barnabætur verði skertar. Mér finnst það gleðiefni að Sigmundur hlustar á fólkið í landinu og þá á ég við barnafjólskyldur sem sannarlega mega illa við að missa spón úr aski sínum sem barnabæturnar hafa óneytanlega verið. Sagði Sigmundur að barnabætur yrðu jafnvel miklu hærri en þær voru í tíð fyrri ríkisstjórnar. Mér finnst góðs viti að ráðherrar ríkisstjórnarinnar séu að þreyfa sig áfram við fjárlagagerðina. Þetta er mikil og yfirgripsmikil vinna sem ekki hefur verið hægt að sjá út og fastákveða í einu skrefi heldur hefur ríkisstjórnin komið með tillögur sem hún hefur síðan breytt eða hafnað. Það er allt í lagi, ef útkoman verður góð og alllflestir landsmenn geta vel við unað.
Eitt af því sem Ríkisstjórnin hefur lagt til við að afla fjármuna fyrir heilbrigðiskerfiskerfið er að lækka framlag í þróunaraðstoð við bágstödd lönd. Við þetta atriði hef ég það að athuga að mér finnst það leitt að framlag til þróunarlanda verði skert. Mér finnst að við Íslendingar sem erum allmennt talin fremur efnuð þjóð eigum ekki að vera neinir eftirbátar nágrannaþjóða okkar hvað þróunaraðstoð varðar. Það er mikil blessun í því að gefa og sýna öðrum örlæti og þá á ég við það er blessun bæði fyrir einstaklinga sem og heilar þjóðir, að gefa. Það segir Biblían Guðs orð. "Sæll er sá sem gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum." Sálmur 41:2 Og "Sælla er að gefa en þiggja." sagði Jesú Kristur.
Ég hef reyndar engar hugmyndir eða tillögur um hvernig hægt sé að afla tekna eða skapa rekstrarafgang svo hægt sé að falla frá áætlun ríkisstjórnarinnar um að lækka stuðning við þróunaraðstoð. En mér finnst Sigmundur og Háttvirtur Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson og fleiri ráðherrar ríkisstjórnarinnar vera það úrræðagóðir að þeir gætu hugsanlega fundið einhver ráð svo Íslendingar geti að minnsta kostið haldið fast við núverandi fjártyrk við þróunaraðstoð. Mér fannst ég eiga að benda ráðherrum ríkisstjórnarinnar á þetta.
Kær kveðja.
![]() |
Ekki skorið niður í barnabótum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2014 kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjávarútvegsráðherra ætti ekki að beygja sig undir vilja ESB.
21.10.2013 | 20:00
Ég vil hvetja háttvirtan Sjávarútvegs og Landbúnaðrráðherra Sigurð Inga Jóhannsson til að samþykkja ekki 12 prósent hlutdeild Íslendinga í Makrílkvótanum. Við íslendingar höfum staðið í 4 landhelgisdeilum eða þorskastríðum eins og það var kallað. Og við bárum sigur úr bítum og áunnum með því stórbættan hag Íslensku þjóðarinnar. Við eigum ekki að láta erlent stórveldi hræða okkur og beygja okkur til hlýðni. Við eigum ekki að láta hugsanlegar hótanir þeirra um löndunarbann hræða okkur. Það er ljóst að við Íslendingar verðum af 50-60 þúsund tonnum að Makrílkvótanum verði 12 prósentin samþykkt.
Ég vil uppörva Sigurð Inga og hina nýju ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Mér finnst þið vera að standa ykkur vel og ég hef trú á að þið munuð koma mörgu góðu til vegar. Ég heyrði í dag í Háttvirtum forsætisráðherra þar sem hann talaði um að vinna við skuldamálin væru samkvæmt áætlun. Það er eðlilegt að Sigmundur og ríkisstjórn hans geti ekki komið öllum kosningaloforðum sínum í framkvæmd strax með því því einu að smella saman fingrunum.
![]() |
Sakar Framsókn um eftirgjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þingmennirnir Kristján L. Möller Samfylkingu, Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki, og Guðmundur Steingrímsson, Bjartri Framtíð hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að lokið verði eins fljótt og unnt er undirbúningi að byggingu nýs Landspítala.
Ég tel það óráðlegt að leggja út í svo kostnaðarsama framkvæmd nú þegar staða ríkissjóðs er ekki sterkari en raun ber vitni. Slík framkvæmd með tilheyrandi kostnaði sem að öllum líkindum mundi falla á ríkissjóð myndi slá allar áætlanir ríkisstjórnarinnar um efnahagsbata Íslensks efnahagslífs út af borðinu. Talað er um að kostnaður við nýjan landspítala yrði um 77 milljarðar en sá kostnaður mundi sennilega fara í 100 milljarða króna vegna þess að slíkar kostnaðaráætlanir eru oft of lágt reiknaðar. Flutningsmenn tillögunnar segja að fjármögnun geti komið úr ríkissjóði eða með láni sem væri tekið af ríkissjóði eða í nafni Nýs Landspítala, en hið síðastnefnda væri ósennilegt hygg ég með veika stöðu Landspítalans í huga. Slík fjárútlát hvort sem er bein greiðsla úr ríkissjóði sem myndi færa Íslenska ríkið niður í svartnætti gífurlegs niðurskurðar og eða ef fjármagnað væri með láni mundi afborganir og vextir valda verulegri byrði fyrir ríkissjóð um ókomin ár. Og að áætlaður sparnaður 2,6 milljarðar á ári vegna hagkvæmari uppbyggingar nýs spítala muni engan veginn vega upp á móti útborgunum láns og vaxtagreiðslum. Slík bygging væri ekki eitthvað sem væri byggt í eitt skipti og eftir það mundi duga næstu 50 árin heldur mundi hún úreldast eftir vissan tíma og þurfa sitt viðhald með kostnaði sem því fylgir.
Ég tel að við verðum að notast við núverandi húsnæði Landspítala eitthvað áfram, hvað lengi þori ég ekki að leggja dóm á. Ég tel að uppbygging atvinnulífsins muni skapa grunn að bættri grunnþjónustu fyrir landsmenn og að hugsanlga verði hægt að byggja nýjan Landspítala með tíð og tíma þegar aðstæður batna.
Ég tel að Háttvirtur fjármálaráðherra hafi lagt fram fjárlagafrumvarp sem muni örva atvinnulífið og hvetji fyrirtæki til vaxtar og ráðningu fleira starfsfólks. Það hyggst hann gera með einföldun regluverks fyrir atvinnurekstur, lítillega lækkaðs veiðigjalds fyrir útgerðarfyrirtæki ásamt fjölda annarra aðgerða sem eiga að örva atvinnulífið með aukinni fjárfestingu, nýsköpun og fleiri störfum. Þessar aðgerðir eru mjög mikilvægar því þær munu skila sér í bættri stöðu ríkissjóðs. Að vísu vil ég segja að framlag til reksturs Landspítala og til tækjakaupa mætti vera hærra og að finna verði fjármagn svo ekki þurfi að taka upp legugjöld. En fjármálaráðherra hefur sagt að þessi atriði geti tekið breytingum í umfjöllun Alþingis ef fjármagn finnst , svo fremi sem það færi ekki rekstrarhalla fyrir ríkissjóð.
![]() |
Vilja hraða spítalaframkvæmdum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2014 kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndun sérfræðingahópa um skaldavanda heimilana er gleðiefni.
16.8.2013 | 23:18
Ég vil lýsa yfir ánægju minni yfir að háttvirtur forsætisráðherra hafi í dag skipað tvo sérfræðingahópa í fyrsta lagi um niðurfellingu höfuðstóls verðtryggðra lána og kosti og galla leiðréttingasjóðs og í öðru lagi um niðurfellingu verðtryggingar á íbúðalánum. Þetta er eins og ég baust við að þeir Sigmundur og Bjarni ásamt fleirum úr ríkisstjórninni hafi verið að vinna vinnuna sína. Þetta er mikið og umfangsmikið verk sem þeir hafa tekist á hendur, að koma í verk: áformum sínum til hjálpar fólkinu í landinu, einkum skuldsettu fólki og fyrrtækjunum í landinu. Það er ekki einfalt verk að koma svo umfangsmiklum aðgerðum til framkvæmdar og ég tel að það sé ekki eitthvað sem hægt er gera á mjög stuttum tíma. Ég tel að þeir hafi verið mjög önnum kafnir undanfarnar vikur og mánuði og hafi mjög lítinn frítíma fengið undanfarið.
Ég vil hvetja þá Sigmund og Bjarna ásamt fleirum úr ráðherraliði ríkisstjórnarinnar að taka sér smá frí eins og hálfan dag. Að bregða undir sér betri fætinum og stíga fæti sínum á Suðurlandsundirlendið, á Hvolsvöll þar sem kjörlendi íslenskra bænda teygjr úr sér svo langt sem augað eigir. En það byrjar undir Kambabrún og nær allt austur að Eyjafjöllum. Það er gott fyrir þá að koma þar sem hreina sveitaloftið leikur við vit hvers manns. En á Hvolsvelli má finna eins og blíðan blæ framtaksemi og atorku líða yfir þorpinu. Frá Sláturfélagi Suðurlands líður oft ilmur af byrkireyktu hangikjöti og reyktum pylsum yfir svæðinu sem er eins og lífsmark hinnar miklu landbúnaðarstarfsemi sem er í mikilli grósku á svæðinu og Suðurlandsundirlendinu öllu.
Ég vil hvetja þá Sigmund og Bjarna ásamt fleirum úr hinni nýju ríkisstjórn að koma og heimsækja starfstöðvar Sláturfélags Suðurlands á Hvolsvelli, þar sem yfirmenn fyrirtækisins munu verða glaðir að taka á móti þeim og munu með gleði fylgja þeim um fjölmargar deildir fyrirtækisins. Þeir eru ákaflega kurteisir og viðræðugóðir og stutt er í brosið hjá þeim, þeir eru duglegir að taka á móti alls konar fólki og leiða það um húsið og kynna fyrir því framleiðsluna. Þeir hafa tekið á móti fyrirmönnum þjóðarinnar jafnt sem fólki úr daglega lífinu.
Sá sem þetta skrifar hefur unnið hjá Sláturfélagi Suðurlands í rúm 22 ár og er mjög ánægður með að vinna þar. Alltaf er gaman þegar fólk úr þjóðlífinu kemur til að heilsa upp á mannskapinn og að kynna sér starfsemina.
![]() |
Hópar takast á við skuldavandann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.8.2013 kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lækkun veiðigjalda er nauðsynleg til að hindra gjaldþrot margra sjávarútvegsfyrirtækja.
18.6.2013 | 20:42
Það hefur valdið talsverðri umræðu á Alþingi og á meðal almennings frumvarp ríkisstjórnarinnar varðandi lækkun á veiðigjaldi á sjávarútveginn á þessu ári og 2014. Hafa þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna Samfylkingar og Vinstri Grænna lýst yfir andstöðu við þetta frumvarp. Stofnað var til undirskriftasöfnunar á netinu til þess að mótmæla þessu frumvarpi.
Ég tel að lækkun á veiðigjöldum á sjávarútvegsfyrirtæki sé óumflýjanleg. Margir útgerðarmenn og sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hafa lýst því yfir að hækkun á veiðigjöldum sem tók gildi með lögum frá 26. júní 2012 sé það geti valdið gjaldþroti eða miklum erfiðleikum hjá mörgum sjávarútvegsfyrirtækjum. Hefur það verið sagt að gjaldið taki burt nánast allan hagnað margra sjávarútvegsfyrirtækja og í sumum tilvikum jafnvel hærri upphæð en sem nemur hagnaðinum.
Annað atriði sem hefur verið nefnt er að fullkomin óvissa er um hvernig eigi að reikna út þetta gjald sem síðasta ríkisstjórn lagði á sjávarútvegsfyrirtækin. Það var ekki hægt að leggja á gjald fyrir 2014 því fullkomin óvissa ríkti um hvert gjaldið ætti að vera. Nefnd sem átti að reikna út grundvöll gjaldsins hefur ekki getað lokið vinnu sinni.
Í þriðja lagi voru hugmyndir um hækkun gjaldsins algerlega óraunhæfar og óskiljanlegt að til hafi staðið að taka allt að þriðja tug milljarða af atvinnugreininni í sérstaka skattlagningu. Tala sumir um að nýja ríkisstjórnin hyggist afsala ríkissjóði tekjum með þessari lækkun á veiðigjaldi, 3,2 milljarða á þessu ári og 6,4 á næsta ári. En staðreyndin er sú að ríkið hafði áskilið sér allt of stóran hlut af tekjum þessara fyrirtækja.
Ríkisstjórnin hefur á stefnuskrá sinni að koma gangi á atvinnumálin og iðnaðinn í landinu á ný. Þessi aðgerð að lækka veiðigjaldið var gerð með það að markmiði að efla þessa atvinnugrein með meiri fjárfestingu og fleiri störfum. Traust atvinnulíf og meiri fjárfesting í atvinnulífinu mun að mínu mati skapa undirstöðu fyrir bættan hag landsmanna og vænka hag ríkissjóðs, sem mun vonandi fljótt skapa svigrúm til að koma til móts við skuldavanda fólks.
![]() |
Tæplega 4.900 hafa skrifað undir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.8.2013 kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Núna þegar formenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hafa sett saman nýjan stjórnarsáttmála og komið saman hægri stjórn. Og þeir ásamt flokksmönnum sínum hafa ákveðið hverjir eiga að skipa hin mismunandi Ráðherra embætti, er eðlilegt að þeir sem skipa ráðherrastóla hinnar nýju ríkisstjórnar, komi sér vel fyrir og velji sér aðstoðarmenn eftir því sem hentar hverjum og einum. Ég vil lýsa yfir ánægju minni með að fjöldi ráðherra hefur verið aukinn úr 8 í 9 og væntanlega mun sá fjöldi ráðherra fara í 10 þegar fram líða stundir og hentugleikar leifa. Ég tel að það hafi verið af brýnni þörf sem embætti Heilbrigðisráðherra var endurvakið.
Það er gott til þess að vita að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, fjármála- og efnahagsmálaráðherra nýrrar ríkisstjórnar hefur valið sér aðstoðarmann, Svanhildi Hólm Valsdóttur.
Er hún að ég tel hinum bestu kostum prýdd, menntuð í lögfræði og hefur verið framkvæmdastjóri Þingflokks Sjálfstæðisflokksins og hefur auk þess verið aðstoðarmaður Bjarna sem formanns síðan 2012. Er gott að hafa einhvern sem hann þekkir vel og getur treyst þegar hann er að hasla sér völl í nýrri ríkisstjórn, og ekki er verra að hafa aðstoðarmann sem er vel kunnug Sjálfstæðisstefnunni og er vel inn í gangi stjórnmálanna vegna þáttöku hennar innan Sjálfstæðisflokksins.
Það er gott að vita að Bjarni og Sigmundur ásamt þingflokk þeirra hafa myndað stjórn og stjórnarsáttmála sem á að koma öllum landsmönnum til góðs. Þeir hafa að ég tel forgangsraðað hlutum á þann hátt að skipulega sé að verki staðið . Svo að allir þættir stjórnarsáttmálans fái afgreiðslu sem fyrst. Á næsta sumarþingi á að fara í að ræða um brýnustu aðgerðirnar til handa fólksins í landinu eins og skattalækkanir, afnám skerðingar þeirrar sem öryrkjar og ellilífeyrisþegar urðu fyrir 2009, og fjárfestingar atvinnulífsins. Og á haustþingi á að taka lánamál heimilanna til skoðunnar. Þetta er allt í góðum gír hjá þeim.
Ég vil uppörva Bjarna og Sigmund í þessu verki þeirra. Mér finnst þeir vera að standa sig vel og vinna þjóð sinni mikið gagn og koma til móts við þarfir fólksins.
![]() |
Svanhildur aðstoðarmaður Bjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Núna þegar stjórnmyndunarviðræður eru vel á veg komnar eða jafnvel brátt á enda, þá hefur það valdið talsverðri umræðu að Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins hefur lýst því yfir að staða ríkissjóðs sé talsvert verri en hann hafði ímyndað sér fyrir kosningar. Hefur því verið fleygt fram að hann hefði átt að hafa gert sér grein fyrir því áður en kosningaloforð voru gefin.
Ég vil segja að Sigmundur kemur mér þannig fyrir sjónir að hann sé mjög heiðarlegur og áreiðanlegur maður, sem vill þjóð sinni vel. Mér finnst hann virka mjög traustvekjandi, hæglátur og ávallt mjög kurteis í allri framkomu. Ég tel ekki að Framsóknarflokkurinn undir stjórn Sigmundar hafi gefið loforð um flata niðurfellingu íbúðalána til þess eins að afla flokknum fylgis, ég tel að Sigmundur hafi í einlægni aðeins viljað fólkinu í landinu hið besta þegar hann ásamt flokksmönnum sínum gaf þetta kosningaloforð, og að þarna hafi ekki legið sviksemi að baki.
Sigmundur hefur lýst því yfir að þrátt fyrir að staða ríkissjóðs sé þetta slæm hafi hann ekki ákveðið að taka aftur loforð sitt varðandi niðurfellingu húsnæðislána. Ég tel að þeir Bjarni og Sigmundur muni móta leið í þessum efnum sem ásættanleg er fyrir fólkið í landinu.
Ég trúi að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eftir að þeir eru komnir í ríkisstjórn muni færa þjóð sinni betri tíma með bættum efnahag og bættri afkomu fólks. Ég leyfi mér að telja að sú stefna sem þessir tveir flokkar myndi saman verði til þess að koma hjólum atvinnulífsins á stað aftur þannig að kaupmáttur og lífskjör geti batnað til hins betra.
![]() |
Vandræðalegt fyrir Sigmund Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hvatningarorð til Bjarna og Sigmundar.
11.5.2013 | 19:16
Mig langar til að hvetja Bjarna og Sigmund í stjórnarmyndunarviðræðum þeirra. Mér finnst það vera allt í lagi þótt viðræðurnar taki nokkuð langan tíma. Því þeir vilja vanda til verks og þeir eru nýliðar í stjórnarmyndun og setu í ríkisstjórn, einhverntímann verður allt fyrst.
Þeir eiga ekki að vera vonsviknir eða fallast hugur þótt snurða hlaupi á þráðin þegar þeir reyna til þrautar að semja um hvernig lausn skuldavanda heimilanna eigi að vera háttað. Ef til þurfa þeir að miðla málum hvað þetta atriði varðar. Flokkar þeirra hafa báðir leiðir sem koma sér vel fyrir fólk sem á í skuldavanda vegna íbúðakaupa, málið er aðeins að finna hinn gullna milliveg milli hugmynda bæði Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
Ég vil benda Bjarna og Sigmundi á leið sem hefur reynst mér og mörgum öðrum sem kristna trú aðhyllast vel, að koma með aðsteðjandi vandamál til Guðs sem getur hjálpað og leyst úr vandamálum, sé honum treyst fyrir því.
Bestu kveðjur.
![]() |
Fundað fram eftir degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)