Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mig langar til að lýsa yfir velþóknun minni á að Sigmundur Davíð hefur snúið sér til Bjarna Benediktssonar með formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Hann sneri sér fyrst eins og alþjóð veit á vinstri vænginn eftir að hafa tekið við stjórnmyndunarumboði frá forseta Íslands. það tel ég hafa verið til að skoða alla möguleika fyrst og vegna þeirrar kurteisi sem ég trúi að hann búi yfir sem hann vildi sýna formönnum hinna framboðanna. Eftir að hafa gengið á milli framboðanna með gottið sem hann hyggst færa Íslensku þjóðinni sem eru kosningaloforð hans og eftir að hafa kíkt á gottið sem hin á vinstri vængnum höfðu upp á að bjóða, sneri hann eftir nokkurn umhugsunartíma til Bjarna. Þegar þangað var komið og eftir að hafa athugað gottið sem Bjarni hafði á boðstólunum ákváðu þeir að skiptast á molum, og setja þá saman í eina skál, en það eru aðgerðir þær sem þeir vonast til að bjóða fólkinu í Landinu.
Ég vona innilega að þeir Sigmundur og Bjarni nái saman með góðar tillögur til handa þjóðinni og geti saman myndað nýja ríkisstjórn. Að þjóðin geti komið til þeirra félaga að afloknum löngum kosningavetri og geti gætt sér á því sem þeir hafa upp á að bjóða.
Mig langar til þess að segja að þrátt fyrir að það langa tímabil sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur voru saman í ríkisstjórn endaði með hruninu velþekkta þá voru tímarnir sem þeir voru í ríkisstjórn þeir blómlegustu hvað varðar efnahag fólks og lágri verðbólgu. Kreppan kom yfir Evrópu og Norðurlöndin og fleiri svæði í heiminum með miklum þunga, þar á meðal á Íslandi. Ég vil ekki segja að það hafi verið rétt að einkavæða bankana en það er ljóst að á þessum tíma sem einkavæðingin átti sér stað voru hugmyndir Kapítalismans í hámarki og hugmyndin um einkavæðingu að hún væri hagkvæm. Stjórnarflokkar þeir sem tóku þessa ákvörðun höfðu að ég tel ekki hugmynd um hvað gæti gerst í sambandi við bankakerfið. Á þessum tíma var efnishyggja á Íslandi og um allan heim vaxandi og Íslendingar tóku þátt í þeim dans kringum "Gullkálfinn". Ég minnist þess að landsmenn voru að fjárfesta í hlutabréfum og ýmsum sjóðum bankanna grunlausir um hvað átti eftir að gerast. Og svo kom hrunið. Hæstvirtur forsætisráðherra á þessum tíma var ásamt öðrum úr þáverandi ríkisstjórn ásakaður um að hafa sýnt vanrækslu í starfi og leyft að hrun fjármálakerfisins ætti sér stað, sem er ekki rétt. Því Landsdómur sem dæmdi í máli hans dæmdi hann saklausan af ákærum í hans garð.
Ég tel ekkert því til fyrirstöðu að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndi saman ríkisstjórn, og ég tel að ríkisstjórn þeirra verði happasæl fyrir landslýð.
![]() |
Valið enn hægt að endurskoða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sigmundur Davíð ætti að fara í stjórnmyndun með Sjálfstæðisflokknum.
1.5.2013 | 11:43
Núna á vordögum þegar kosningar eru yfirstaðnar er það umhugsunarefni flestra að sjá hvernig stjórnarmyndunarviðræðum reiðir af. Formaður Framsóknarflokks var eins og kunnugt er í viðræðum við formenn Samfylkingar og Pírata í gær, og ekki er ljóst hvort að hann velji þá leið sem algengust er, sem er að fara í ríkisstjórnarsamstarf við þann flokk sem fékk mest fylgi í Alþingiskosningum. Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata tjáði sig í dag á Facebook síðu sinni að það væri mögulegt að útkoma stjórnarmyndunar mundi komi öllum á óvart. Það er augljóst að fari Framsóknarflokkur í stjórnarsamstarf við einn eða tvo vinstriflokkanna þá yrði útkoman úr því minnihlutastjórn.
Minnihlutastjórnir eru eftir því sem ég best veit, sjaldgæfar í Þingsögu Íslands, en aðeins 4 slíkar stjórnir hafa setið á Lýðveldistímanum. Slíkar stjórnir hafa eins og kunnugt er ekki öruggan þingmeirihluta á bak við sig og þurfa þvi að hafa óbeinan stuðning þingmanna úr öðrum flokkum til að verja sig fyrir hugsanlegu vantrausti. Minnihlutastjórnir hafa yfirleitt setið stutt, að frátalinni síðustu ríkisstjórn. Fyrsta slíka stjórnin var minnihlutastjórn Ólafar Thors 1949-1950 sem sat í 3 mánuði. 1958-1959 leiddi Emil Jónsson minnihlutastjórn Alþýðuflokks sem var varin af Sjálfstæðisflokki. Sú stjórn sat í 11 mánuði. 1979-1980 leiddi Benedikt Gröndal minnihlutastjórn Alþýðuflokks sem sat í tæpa 4 mánuði. Slíkar stjórnir hafa yfirleitt verið undanfari nánara samstarfs stjórnarflokks og þess flokks sem ver hana vantrausti, og eru yfirleitt taldar veikar stjórnir vegna þess að örðugt getur verið að koma málum í gegn um þingið.
Mig langar til að tjá mig um að mér þætti það eðlilegast og réttast að formaður Framsóknarflokks, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leitaði á náðir Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins með stjórnarmyndun. Það tel ég réttlátt gagnvart þeim mikla fjölda landsmanna sem greiddu Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt, vegna ábyrgðar þeirrar og útsjónarsemi sem þeir töldu að flokkurinn hefði sýnt varðandi margvísleg mál almennings og fyrirtækja.
Mig langar til að lýsa yfir þeirri skoðun minni með fullri virðingu fyrir háttvirtum formanni Framsóknarflokksins að það sé heillavænlegast að snúa sér til Sjálfstæðismanna með stjórnarsamstarf. Málsmetandi menn sem hafa tjáð sig í fjölmiðlum og á netinu hafa sagt að stefna Sjálfstæðisflokks varðandi húsnæðislán, aðgerðir til að létta til með fólkinu í landinu eins og skatta og virðisaukaskatts lækkanir og lækkun bensínverðs ofl. sé raunhæfari og ódýrari fyrir ríkissjóð en aðgerðir sem mörg hinna framboðanna boða. Og eru mjög góður kostur fyrir fólk hvað afkomu snertir og eru framkvæmanlegar jafnvel nú þegar. Ég vil hvetja háttvirtan formann Framsóknarflokksins að leita á náðir Sjálfstæðisflokksins sem trausts samstarfsaðila í næstu ríkisstjórn. Ég geri fastlega ráð fyrir að formenn þessara flokka geti ef vilji er fyrir höndum komið sér saman um ásættanlega stefnu, fólkinu í landinu til handa.
![]() |
Minnihlutastjórn möguleg? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veljum stöðugleika og góð lífskjör fyrir alla í landinu.
27.4.2013 | 13:33
Í dag kjósum við til Alþingis 2013, þann flokk sem við treystum best.
Ég bið ykkur, kæru kjósendur að velja þann flokk sem býður upp á stöðugleika í fjármálum ríkisins, sem skilar sér í betri afkomu fyrir fólkið í landinu og atvinnulífið.
Sem býður raunhæfar lausnir í lánamálum heimilanna. Lækkun á höfuðstól með skattaafslætti og enn meiri höfuðstólslækkun með séreignarsparnaði. Vextir sambærilegir og í nágrannalöndunum. Verð og óverðtryggð lán og seinna ef aðstæður leyfa afnám verðtryggingar. Við þetta má bæta afnámi stimpilgjalda og að leifilegt sé að skila lyklum af húsnæði sé greiðslugeta óyfirstíganleg ásamt aðgerðum sem auðvelda eiga leið inn á fasteignamarkaðinn.
Sem býður raunhæfar lausnir fyrir atvinnulífið. Afnám gjaldeyrishafta, lækkun skatta og gjalda, eflingu einkafaramtaks og nýsköpunar, minni ríkisafskipti og miðstýringu. Og síðast en ekki síst stöðugt umhverfi fyirir atvinnulífið.
Sem býður raunhæfar lausnir fyrir alla landsmenn. Lækkun tekjuskatts og virðisaukaskatts og lækkaðar álögur á bensíni.
Kjósum Sjálfstæðisflokkin (X-D) í dag!
![]() |
Landsmenn ganga að kjörborðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Öflugt atvinnulíf er undirstaðan fyrir bættum lífskjörum á Íslandi.
25.4.2013 | 20:19
![]() |
Framsókn stærst í könnun Stöðvar 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
![]() |
Fylgi stóru flokkanna minnkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bætt fylgi Sjálfstæðisflokksins er gleðiefni.
18.4.2013 | 23:59
Eftir rúma viku göngum við til kosninga. Munum við þá velja þann flokk sem við teljum best treystandi til að taka að sér stjórn landsins okkar. Þá kemur upp í hugann það sem okkur finnst brýnast að komandi ríkisstjórn geri fyrir okkur. Lánamál heimilanna hafa þarna verið efst á baugi hjá allflestum landsmanna. Lausnir framboðanna eru margs konar í þessum viðkvæma málaflokki. Hefur oft verið talað um að lausnir sumra framboðanna séu óraunhæfar miðað við hvernig staða ríkissjóðs er núna. Samkvæmt skoðanakönnunum undanfarnar vikur eru þeir flokkar sem njóta mest fylgis Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.
Samkvæmt skoðanakönnun Gallup í dag er fylgi Sjálfstæðisflokksins 24% á móti 27% hjá Framsókn, og að skoðanakönnun MMR sýndi fram á meira fylgi hjá Sjálfstæðisflokki en hjá Framsókn. Kemur fram á MBL.IS að aukið fylgi hjá Sjálfstæðisflokknum sé vegna þess að fyrrum fylgjendur flokksins séu að "snúa heim".
Það vill oft verða svo að menn láta glepjast þegar glæsi tilboð berast þeim. Og raunin varð sú að: Í þoku og illviðri, innistæðulítilla kosningaloforða hinna framboðanna, villtust sumir fylgjendur Sjálfstæðisflokksins í burtu frá flokknum. Eins og oft vill brenna við hjá okkur mannfólkinu þá var grasið í þeirra huga, grænna hinum meginn. En góðu heilli, virðast þeir nú hafa áttað sig, og eru nú að snúa heim, heim til heimastöðvanna, Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn býður raunhæfar lausnir í húsnæðislánum, þær eru að sögn Sjálfstæðismanna hvorki of íþyngjandi fyrir þjóðarbúið né skapa þær óstöðugleika né mikla verðbólgu. Þær virðast í fyrstu sýn vera umfangsminni en þær lausnir sem td. Framsóknarflokkurinn eða Samfylkingin hafa upp á að bjóða. En þegar grannt er skoðað sjáum við að þeim til viðbótar eru aðgerðir sem flokkurinn hyggst framkvæmda til að létta til með heimilunum (Lækkun tekju- og virðisaukaskatts og lækkun bensínverðs), sem gerir það að verkum að á heildina er litið eru lausnir flokksins heimilunum til handa verulega álitlegur kostur. (Lausnir varðandi lánamál heimilanna eru ma: Stimpilgjöld afnumin, skattaafsláttur af greiðslum inná lán, hluti séreignarsparnaðar renni til innborgunar á láni, boðið upp á verðtryggð og óverðtryggð lán, að vaxtaprósenta verði sambærileg og í nágrannalöndunum, minnkandi vægi verðtryggingar, og ef aðstæður leyfa verði verðtrygging afnumin)
Aðgerðir fyrir fyrirtækin og atvinnulífið í landinu eru að ég tel vel úthugsaðar lausnir, vel til þess fallnar að koma atvinnulífinu á skrið aftur og skapa hér velmegun í landinu. Því undirstaðan fyrir góðu gengi ríkisjóðs og fyrir bættum lífskjörum fólksins í landinu er öflugur atvinnuvegur ásamt fjárfestingu og nýsköpun. (Meðal þessara aðgerða eru: Afnám gjaldeyrishafta, lægri skattar og gjöld til fyrirtækja, minni ríkisafskipti og miðstýring, stöðugt umhverfi fyrir atvinnulífið með fjölgun starfa og hækkandi launum).
Ég vil hvetja þig til þess að ljá atkvæði þitt þeim flokki sem býður upp á raunhæfar lausnir fyrir fólkið í landinu til bættra lífskjara.
![]() |
Framsókn stærst í könnun Gallup |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bjarni Benediktsson ætti ekki að segja af sér.
13.4.2013 | 09:42
![]() |
Óvissa um framtíð Bjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Leyfið Bjarna Benediktssyni að sanna sig.
11.4.2013 | 19:56
![]() |
Fylgið myndi aukast ef Hanna Birna væri formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfstæðismenn hafa upp á margt gott að bjóða.
10.4.2013 | 22:27
![]() |
Framsókn ánægð - sjálfstæðismenn brýna vopnin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfstæðisflokkurinn býður ekki upp á óraunhæfar lausnir varðandi skuldavanda heimilanna.
8.4.2013 | 23:15
![]() |
Bjarni: Trúi á stefnuna fram í rauðan dauðann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.6.2013 kl. 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)