Lesið um 19 vikna fóstrið

Sjáið fóstrið sjúga á sér þumal­fing­urinn.*

methode_times_prodmigration_web_bin_1de94d19-91ed-3b68-804d-aadbfccc5363 (1)

Komið er í ljós, að þegar fóstur sýgur þum­alfingur sinn, þá sést að það er fyrir fram við­bú­ið með því að opna munninn rétt áður.

Spurt er á dreifiblaði brezkra lífsverndarsinna:

If he is not alive,
why is he growing?
If he is not a human being,
what kind of being is he?
If he is not a child,
why is he sucking his thumb?
If he is a living, human child,
why is it legal to kill him?

* Myndin er af fjögurra og hálfs mánaðar fóstri, þ.e. um 19 vikna, tekin af hinum sænska Lennart Nilsson (Et Barn bliver til, Gyldendal, endurútg. 1985, s. 125; Barn verður til, Vaka-Helgafell, án ártals, s. 140).

En hér á Alþingi Íslendinga var í alvöru samþykkt að gera fóstureyðingar frjálsar að kröfu konu (af hvaða ástæðu sem er og þarf ekki að tilgreina neina!) til loka 22. viku meðgöngu! Og þetta var stjórnarfrumvarp!!!

þessi sönnu og vel ígrunduðu orð eru skrifuð af Jóni Vali heitnum á Kristblogi 25. júní 2019. Er þessi pistill birtur í fullvissu þess að höfundur hefði viljað að boðskapur hans væri sem flestum ljós.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér Steindór fyrir þessar góðu ábendingar.

Hvernig stendur á því að fóstrið vex ef það er ekki lifandi.

Ef fóstrið er ekki mannvera hverskonar vera er það þá?

Hvernig getur dauður hlutur tekið upp á því að sjúga þumalfingur sinn?

Ef fóstrið er lifandi mannvera, hvers vegna má þá drepa það, jafnvel þó það hafi aldrei brotið af sér, aldrei sagt eitt styggðarorð, aldrei gert neinum neitt mein?

Gilda önnur lögmál um lítil ósjálfbjarga börn en ótýnda glæpamenn????? eða þingmenn sem ljúga að almenningi, svíkja og pretta???????

Svona eru hin ógeðslegu stjórnmál í dag, á valdi hins illa.

Guð fyrirgefi okkur hið hrópandi ranglæti sem viðgengst okkar á meðal.

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.2.2020 kl. 19:26

2 identicon

Furðulegt að sjá að þú hefur tekið upp lítilmannlega takta Jóns Vals í því að leyfa enga gagnrýni og engin mótrök. Sá aumingjaháttur hefði mátt drepast með honum. Stórmenni verðið þið seint kallaðir og málstaðurinn greinilega svo veikur að ritskoðun og bann á ip tölur er eina svar ykkar þegar bullinu er andmælt.

Vagn (IP-tala skráð) 15.2.2020 kl. 23:05

3 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Þakka þér kærlega fyrir Tómas fyrir góð orð.

Vagn, þú getur haft þína skoðun en mér finnst það ekki vera bull að benda á að fóstureyðingar séu rangar (allavega þegar líf móður er ekki í hættu) og að fóstur hafi tilfinningar eins og barn og finni þess vegna til. Mér finnst leitt að þú skulir skrifa slæm og neikvæð orð um Jón heitinn.

Steindór Sigursteinsson, 15.2.2020 kl. 23:56

4 identicon

Kjósir þú að vitna í Jón Val og ausa hann lofi þá áskil ég mér rétt til að segja hvernig hann kom mér fyrir sjónir og hvaða mann hann hafði að geyma.

Skoðun er eitt og hver má hafa sína. En fullyrðingar sem hafa margoft verið afsannaðar eru bull. Þeir sem halda þeim fram eru að bulla og teljast með þeim sem segja jörðina flata. Hvað þér finnst skiptir engu máli og er hvorki rök né sönnun, það sem er skiptir máli.

Og það að ip tölu bannið þitt sé ennþá virkt segir mér að þú hræðist enn sannleikan og kjósir að loka augunum og lifa í blekkingu og lygi, eins og drottnari þinn heitinn.

Vagn (IP-tala skráð) 16.2.2020 kl. 03:57

5 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Ég hef leyft aftur fyrri ip töluna þína. Jón heitinn er ekki drottnari minn það er Jesúm Kristur og Guð faðir sem bæði ég og Jón heitinn trúum báðir á. Ég vildi aðeins að fólk fengi að lesa þetta góða blogg hans. Með þessu bloggi vildi ég benda á að fóstur er orðið furðu líkt fæddu barni á þessum aldri 19 vikna og að mér finnst grimmd að taka það af lífi.

Steindór Sigursteinsson, 16.2.2020 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband