Þjóðsöngurinn
12.4.2015 | 11:37
Það er mikill heiður að tilheyra þjóðríki sem opinberlega og með löggjöf sinni og Stjórnarskrá styður og verndar Kristna trú. Einn af þeim þáttum sem Íslendingar hafa tekið upp til að heiðra kristna trú, er hinn Íslenski Þjóðsöngur. Er hann saminn af Mattíasi Jochumssyni með lagi Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Heitir ljóð það sem Þjóðsöngurinn er byggður á "Lofsöngur". En það er hann svo sannarlega því í honum er hin fegursta lofgjörð þjóðar til skapara síns, Guðs Almáttugs skapara himins og jarðar. Þjóðsöngurinn gegnur oftast undir heitinu "Ó Guð vors lands" sem er fyrsta ljóðlína hans. Hversu stórkostlegt er það ekki þegar þjóðríki tekur afstöðu með skapara sínum og lýsir því yfir að það vilji styðja og standa vörð um trú á hann.
Ég birti hér ljóðlínur þessa fallega lags, sem á svo áhrifaríkan hátt lýsir lofsöng Íslenskrar alþýðu til Guðs skapara síns.
Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
Íslands þúsund ár,
Íslands þúsund ár,
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram
og fórnum þér brennandi, brennandi sál,
guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns,
og vér kvökum vort helgasta mál.
Vér kvökum og þökkum í þúsund ár,
því þú ert vort einasta skjól.
Vér kvökum og þökkum með titrandi tár,
því þú tilbjóst vort forlagahjól.
Íslands þúsund ár
Íslands þúsund ár
voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár,
sem hitna við skínandi sól.
Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.
Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf,
vor leiðtogi í daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf
og vor hertogi á þjóðlífsins braut.
Íslands þúsund ár
Íslands þúsund ár
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á guðsríkis braut.
Sigmundur Davíð einn af betri stjórnmálamönnum í sögu lýðveldisins.
12.4.2015 | 10:42
Háttvirtur forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var endurkjörinn formaður Framsóknarflokksins á flokksþingi í gær. Fékk hann 98,2 prósenta gildra atkvæða sem á reyndar engum að koma á óvart því hann hefur sýnt fram á að hann er einn af meiri stjórnmálaskörungum sem Ísland hefur alið. Má þar nefna að hann og ríkisstjórn hans ýtti úr vör skuldaniðurfærslu til handa almennings með stökkbreytt íbúðalán. Fjárhagur ríkisins og kaupmáttur fólks hefur tekið mikið stökk upp á við. Er nú svo farið að launþegar eru farnir að sjá að menn eru komnir í brúna (Sigmundur og Bjarni) sem komið hafa þjóðarskútunni á ágætt skrið. Sést það á því að umsemjendur launþega og félög þeirra hafa undanfarin misser verið að tala um launahækkanir sem skipta tugum prósenta.
Nei það skal engan undra að Sigmundur Davíð fékk endurkosningu upp á 98.2 prósent. Slíkur er hugurinn í honum og atorkan. Skoðanakannanir undanfarið sem sýnt hafa lítið fylgi flokks hans 11 prósent þurfa ekki að þýða mikið. Skoðanakannanir sýna fylgi upp og niður eftir því hvað ríkisstjórnir eru að takast á við í það og það sinnið, en ríkisstjórnin hefur verið að taka á erfiðum málum sem krefjast mikillar ígrundunar eins og sjávarútvegsmálin sem eru mjög vandmeðfarin. Svo hefur stjórnarandstaðan staðið fyrir nokkurri gagnrýni á ríkisstjórnina og samflokksmann Sigmundar, háttvirtan Utanríkisráðherra í tengslum við Evrópumálin. En eins og kunnugt er dró Gunnar Bragi umsókn Íslands að ESB til baka með bréfi til formanns ráðherraráðs ESB. Þessi gagnrýni stjórnarandstöðunnar og ESB fylgjandi fjölmiðla er ekkert nema stormur í vatnsglasi. Það er enginn skaði skeður fyrir Íslendinga, síður en svo. Hafa þingmenn Samfylkingar og hinir vinstri flokkarnir, því þeir hafa óvænt snúist á sveif með Samfylkingunni í þessum áróðri, látið þau ummæli falla að þjóðin skuli fá að neyta réttar síns og skuli fá að kjósa um áframhald aðildarviðræðna. En það er hvílík fásinna að það nær engu tali. Að sjálfsögðu er hér ekki um eiginlegar umræður eða samningaferli að ræða heldur aðlögun og innsetning og tilskipun laga frá Evrópska stórveldinu. Mættu Íslensk þjóð varðveitast frá því að flækja sig í Evrópu- og Evru samstarfinu. Því það er bágt efnahagsástandi í mörgum ríkjum ESB sem margir vilja kenna Evrunni um, og mikið atvinnuleysi sérstaklega á meðal ungs fólks, svo mikið að við Íslendingar höfum aldrei kynnst öðru eins.
Sigmundur og flokkur hans hafa líka staðið vörð um Stjórnarskrá lýðveldisins, en vinstri flokkarnir vilja breyta henni til að auðvelda hugsanlega inngöngu í Evrópusambandið, og einnig til að fá úr gildi tekin lög um tengingu ríkis og kirkju. En það er mikilvægt að Íslenska ríkið styðji áframhaldandi við Kristna trú og kirkju og meti hana sem órjúfanlegan hluta af Íslensku þjóðlífi, efli hana og að hún verði áfram hluti af starfi hins opinbera með launagreiðslum til presta og fleiri þjóna hennar. Mætti Framsóknarflokkurinn og hinn stjórnarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn standa vörð um kristin gildi og hafa kristin viðmið og kristin gildi í heiðri höfð í gerðum sínum og flokkssamþykktum.
Kær kveðja.
![]() |
Sigmundur Davíð endurkjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)