Hvaða atburði mun blóðmáni þessi bera í skauti sér?

Hérna er bréf sem vinur minn sendi mér 12 mars á þessu ári, og á hann við blóðtungl það sem greint er frá á Mbl.is síðastliðinn miðvikudag.  Þetta er svo merkilegt efni að mér finnst það tilvalið að birta það hér á bloggsíðu minni.  Byrjar hér bréfið:

Í nokkur ár hafa menn verið að taka eftir því að svo kölluð blóð tungl, það er þegar tunglið birtist rautt á fullum tunglmyrkva hafa skarast á hátíðir Gyðinga í fortíðinni og svo í náinni framtíð. en það verður á þessu ári  2014 og á næsta ári 2015. En þá hafa í sögunni alltaf orðið erfiðleikar og oft stríð En í sköpunar sögunni í Biblíunni er sagt frá því að Guð setti Sólinna Tunglið og stjörnurnar til að greina nót frá degi og til að marka tíðir, daga og ár og til tákns. 

Í Biblíunni er texti í Jóel 3:4. Sólin verður myrk og tunglið sem blóð áður en dagur Drottins kemur, hinn mikli og ógurlegi.  En þessi blóð tungl hafa alltaf birst 4 í röð, á 2 árum þar sem þau hafa skarast inn í hátíðir gyðinga

á 1 árinu á Páskum og síðan á laufskálahátíð,

á 2 árinu á Páskum og síðan á laufskálahátíð.

8 skiptið sem þau hafa birst 4 í röð á 2 þúsund árum er núna á þessu ári 2014 og svo 2015. 

Þekkt blóð tungl í sögunni voru, 4 í röð.

1493 - 1494. en 1492 var öllum gyðingum á Spáni boðið að taka kaþólska trú annars yrðu þeir reknir frá Spáni.

Kólumbus fór líka sínu fyrstu ferð til Ameríku sama ár 1492 og sína síðustu ferð 1498 og nokkrar inn á milli.

Síðan voru 4 í röð 1949 - 1950.   En frelsistríðið í Ísrael var 1948 - 1949

Síðan voru 4 í röð 1967 - 1968.  En sex daga stríð Ísraelsmanna var 1967

Og svo verða 4 í röð 2014 - 2015.   Þeir verða 15. Apríl og 8. Október 2014

Sólmyrkvi er 20. Mars 2015.   Og svo 4. Apríl, og 28. September 2015

Hérna er síða um Blóð tungl með ártölum hvenær þau voru í sögunni og hvenær þau verða.

 http://watch.org/showart.php3?idx=104119

 

Og líka síða sem nær lengra aftur í tímann þar sem þessi blóð tungl birtust, atburðir og stríð þá sem höfðu áhrif á mannkyns söguna.   Og hvernig fólk trúir að þetta séu tákn frá Guði um og hvernig þessi blóð tungl komi inn í síðustu tíma og merki endur komu Jesú.   En Biblían segir frá því að Jesús komi aftur til Jarðarinnar á sama hátt og hann fór til Himna.

 http://www.pray4zion.org/TheComingBloodMoons.html

 Og líka vídeó um 4 næstu blóð tungl með perry stone.

 http://www.youtube.com/watch?v=uiZo6p5v0Uc

En hvað er það sem fólk hefur kallað blóð tungl, það er þegar tunglið birtist rautt.   Það gerist í fullum tunglmyrkva þegar Jörðin varpar skugga sínum á tunglið og geislar Sólarinnar skína í kringum jörðinna inn í andrúmsloftið, en þá myndast þessi rauða birta og endurvarpast á tunglið sem verður þá rauð litað.

 http://earthsky.org/space/why-does-the-moon-look-red-during-a-total-lunar-eclipse

 http://scienceblogs.com/startswithabang/2011/02/01/why-the-moon-turns-red-during/

Hérna er síða frá Nasa hvenær það eru tunglmyrkvar.   Það er hægt að bera saman dagatalið um tunglmyrkvana og dagatalið um hátíðir Gyðinga saman.   þá sér maður að tímasetningin passar saman, en þá falla blóð tunglin inn í hátíðir Gyðinga fyrir árin 2014 - 2015.

 http://eclipse.gsfc.nasa.gov/lunar.html

 Hérna er síða frá Nasa hvenær það eru sólmyrkvar

 http://eclipse.gsfc.nasa.gov/SEdecade/SEdecade2011.html

 hér er síða með dagatali þar sem allir tunglmyrkvar og sólmyrkvar eru sýndir

 http://www.seasky.org/astronomy/astronomy-calendar-2014.html

 Og líka síða með dagatali um hvenær Hátíðir gyðinga eru.

 http://www.chabad.org/holidays/default_cdo/year/2014/jewish/2014-Holidays.htm

 https://www.jewishvirtuallibrary.org/jsource/Judaism/festivals.html

Hérna eru síður um Biblíuleg brúðkaup Gyðinga til forna og það er síðan tengt við Jesú að hann er okkar brúðgumi eins og Biblían talar um.

En í síðunni er sagt frá því hvernig brúðkaupið fór fram frá upphafi þess og til enda.   þar er margt skemtilegt eins og það að fyrst var giftingar sáttmálinn Gerður, síðan yfirgaf brúðguminn brúðina til þess að gera handa henni sérstakt herbergi í húsi föður hans þar sem þau yrðu 2 saman, síðan gátu liðið allt að 12 mánuðum þar til brúðguminn kæmi að sækja brúðina sína, en hann kom venjulega þegar líða tók að miðnætti og þá var blásið í lúður og fólk dansaði og hrópaði á götunum, En þá tók brúðguminn brúðina og fór með hana í hús föður síns til þess að þau gætu verið 2 saman í 7 daga í þessu herbergi sem hann útbjó handa þeim.

Jesús kom til Jarðarinnar til þess að borga okkar gjald, til þess að við gætum þá verið hans börn, synir og dætur.   En hver er brúðurinn nema þeir sem hann borgaði gjaldið fyrir.  Hann borgaði þetta gjald sem Biblían segir frá að sé hinn nýi sáttmál milli Guðs og manna, sem hann undiritaði með blóði sínu sem rann á Golgata þegar hann var negldur á Kross.

Í Biblíunni er talað um 7 ára þrengingar tíma þar sem andkristur mun ríkja. 

Kemur Jesús núna á okkar dögum til þess að taka brúði sína til þess að vera með henni  í 7 ár á meðan að þrengingar tímar eru á Jörðinni sem Biblían talar um?

 http://www.opendoorministrieswv.org/ancientjewishwedding.html

 http://www.returntogod.com/hebrew/wedding.htm

 það er vitnað í síðunni fyrir ofan frá Jesia 26:20-21.  

 20 Gakk þú, þjóð mín, inn í herbergi þitt og lyk aftur dyrunum á eftir þér. Fel þig skamma hríð, uns reiðin er liðin hjá.

21 Því sjá, Drottinn gengur út frá aðseturstað sínum til þess að hegna íbúum jarðarinnar fyrir misgjörðir þeirra. Jörðin mun birtast láta blóðið, sem á henni hefir verið úthellt, og hún mun ekki lengur hylja þá, sem á henni hafa myrtir verið.

 http://www.wordplanet.org/is/23/26.htm

Hérna er merkilegt Vídeó um draumsýn sem maður sá, um blóð tungl og endurkomu Jesú, en Jesús kom í draum sýninni þegar engin átti von á.  Biblían segir frá því að Jesús komi aftur þegar engin á von á því, hann segir látið mig ekki Finna ykkur sofandi, Það segi ég ykkur vakið því engin veit dagin eða stundinna.

 http://www.youtube.com/watch?v=_t3nKgSPXMI

Og líka síður um friðarviðræður Ísraels og Palestínu, en þeir setja tímapunkt til 29 Apríl (þetta bréf er ritað 12 mars 2014) en þá er reyndar deildar sólmyrkvi sama dag, það er hægt að lesa um hann á síðunni fyrir ofan.  og þá á að vera búið að ganga frá einhverju í þessum friðar viðræðum til þess að hefja nýja ramma áætlun um frið og öryggi á þessu svæði skilst mér.  Kemur Jesús aftur eftir að þessi friðar samningur milli Ísraelsmanna og palestínumanna verður undiritaður, kannski í kringum þessi blóð tungl?  Engin veit það nema Guð.

En hvað átti brúðurinn að gera áður fyrr í Ísrael þegar hún var að bíða eftir brúðgumanum?

hún átti að vera viðbúin komu hans, vera tilbúin í brúðar fötunum.

En Jesús segir okkur að vaka allar stundir og biðja, lifa í honum, vera viðbúin komu hans.

http://nyulocal.com/national/2014/02/20/john-kerrys-plan-for-israel-palestine-peace-talks-going-as-smoothly-as-expected/

http://www.usatoday.com/story/news/world/2014/02/03/israel-palestine-troops-jewish-state-peace/5189139/

http://www.jpost.com/Diplomacy-and-Politics/US-expects-delay-on-Israeli-Palestinian-peace-talks-Kerry-framework-rollout-340229

Kær kveðja.

Steindór.

 


mbl.is Blóðmáninn sést ekki frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta eru stórmerkilegar upplýsingar og hafðu bestu þakkir fyrir að deila þeim. Það ætti enginn að hlægja að þeim. Þú storkar ekki náttúrulögmálunum og það er engin tilviljun að gyðingar eru hér enn einir fornþjóða. Það verður aldrei gert út af við þá, og þeir sem reyna það hverfa á braut fyrir tilstilli afla sem eru stærri og meiri en mannkynið og starfa án aðstoðar þess.

Jón (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 17:39

2 identicon

Gyðingahatarar ættu að hafa eftirfarandi í huga.

Alvöru viðskiptabann við Ísrael þýðir að henda farsímanum og hætta að nota tölvu. Að hætta að kaupa appelsínur bitnar bara á litlum bændadurgum og svo er landbúðnaðurinn aðalatvinnuvegur Palestínuaraba sem búsettir eru í Ísrael, en þeir eru næstum jafn margir og í Palestínu sjálfri og vilja hvergi fara. Ef þú villt hrella litla bændur, endilega hættu að kaupa appelsínur. Ef þú villt gera eitthvað í alvörunni, gjörðu svo vel að henda farsímanum í klósettið. Það getur enginn notað slíkan án búnaðar frá Ísrael í dag.

Þar sem Ísraelar eru einn af hverjum þremur gyðingum (Hitler drap líka bara einn af þremur, svo ef það er rökrétt að segja Ísraelshatur sé ekki gyðingahatur var hann það ekki heldur), svo endilega gakktu lengra og settu viðskiptabann á Gyðinga. Til að sanna heiðarleika þinn, styttu líf þitt og fjölskyldumeðlima um sirka 15-20 ár með að neita að taka lyf sem næstum allir munu þurfa á að halda og gyðingar hafa framleitt. Gyðingar eiga fleiri nóbelsverðlaunahafa í læknavísindunum en neinn annar. Næst þegar þig vantar lyf eftir þá, segðu bara að þú getir ekki tekið við þeim af siðferðisástæðum og láttu þig hverfa héðan.

Hafðu í huga að þetta hatur bitnar ekki bara á sjálfum þér, heldur börnum þínum, barnabörnum og barnabarnabörnum, því syndir feðrana erfast, það er bara náttúrulögmál og verður útskírt betur seinna af vísindamönnum. Slepptu því að fjölga þér ef þú ætlar að láta eftir því. Þá er þér frjálst að skaða sjálfan þig með því. Gyðingum geturðu ekkert gert, því sá sem reynir það, sem og kynþátthatarar af hvaða tagi sem er, hvern af mannanna börnum sem þeir hata, eru í stríði við sjálfan Guð og það stríð vinnur enginn.

Jón (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 17:45

3 identicon

Sett hér ef þeir skyldu sjá þetta. Síðuhafi er enginn slíkur og það er öllum augljóst.

Jón (IP-tala skráð) 10.10.2014 kl. 17:47

4 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Þakka þér fyrir góðar athugasemdir.

Steindór Sigursteinsson, 10.10.2014 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband