Íslendingar ættu að beita sér í makrílmálinu sem fullvalda ríki.

Nú þegar samningaviðræður ESB og annarra hagsmunaríkja vegna skiptingu Makrílaflans stendur yfir beinist athygli landsmanna óneitanlega að því hvað Íslensk stjórnvöld muni gera í málinu.  Framkvæmdastjórn ESB býður Íslendingum aðeins 11,9% hlutdeild í heildaraflanum en Íslendingar hafa eins og kunnugt er undanfarin ár haldið fast við 16-17% aflans  .Enda eru fyrir því gild rök að Ísland sem fullvalda strandríki með mikið af Makríl í landhelginni kringum landið haldi óbreyttri aflahlutdeild.  Makríllinn etur eins og rannsóknir sýna mikið af æti frá öðrum fisktegundum.  Er talað um að aflahlutdeildin sem ESB býður Íslendingum sé ekki sanngjörn heldur sé það yfirgangur stórveldis gegn Íslendingum, og má því að líkum geta að ESB hugsi að það hafi Ísland að nokkru leiti í hendi sinni þar sem Íslendingar hafa enn ekki formlega slitið aðildarviðræðum sínum við sambandið, og er Ísland því fræðilega séð umsóknarríki að Evrópusambandinu.

Ég vil hvetja ríkisstjórnina og háttvirtan Sjávarútvegs og Landbúnaðarráðherra að halda fast við 16-17% hlutdeild í Makrílaflanum.  Og sýni með því framkvæmdastjórn ESB að við eru fullvalda þjóð og við látum ekki bjóða okkur stór skerta aflaheimild.  Íslendingar fóru frá því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu yfir í að verða ein sú ríkasta, einmitt í krafti sjálfstæðis síns og stækkun landhelgi sinnar úr 4 mílum í 200 mílur.

Ég vil einnig hvetja ráðamenn ríkisstjórnarinnar að slíta aðildarviðræðunum við Evrópusambandið.  Bjarni Benediktsson tjáði sig í fréttatíma RÚV núna í kvöld um að það  væri ekki vegna Krónunnar sem óstöðugleiki ríkti í Íslensku efnahagslífi heldur væri það vegna annarra þátta og væri það að mestu okkur sjálfum um að kenna.  Evran eða aðild að ESB mun ekki sjálfkrafa færa okkur stöðugleika sem við sækjumst eftir heldur með því að við sjálf Íslendingar komum stöðugleika í fjármál lands okkar. 


mbl.is Gefi ekki eftir í makríldeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

30% Er klar opnunarkrafa og ekki hvika fra tar se Island er strandriki utan ESB. Sjaid Fareyinga og teirra krofu um 23% hlutdeild. Island tarf menn sem tora ad standa I lappirnar.

Kolbeinn Pálsson, 23.10.2013 kl. 20:54

2 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Komdu sæll Kolbeinn, Íslensk stjórnvöld ættu að vera djörf í kröfum sínum varðandi hlutdeild í Makrílveiðunum og beina augum Framkvæmdaráðs ESB að raunverulegum veiðirétti Íslands á Makríl.  Stjórnvöld ættu að vera óhrædd að semja eins og fullvalda strandríki og að losa sig við allan tvístígandahátt varðandi aðildarferli Íslands að ESB og slíta aðildarviðræðunum.

Steindór Sigursteinsson, 23.10.2013 kl. 21:46

3 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Ég met reyndar hina nýju ríkisstjórn mjög mikils og ráðherra hennar.  Ég trúi að ríkisstjórnin eigi eftir að reynast landsmönnum vel og muni vinna vel að hag lands og þjóðar.

Steindór Sigursteinsson, 23.10.2013 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband