Ekki skaðar það börnin á neinn hátt að fá að heyra Guðs Orð

Í könnun sem nú stendur yfir á Dv.is þar sem spurt er; “Á að leyfa kirkjuferðir skólabarna á skólatíma” kemur fram að 66,5% eru því fylgjandi en 33,5% á móti. Kirkjuheimsóknir eru á vegum skólanna og fara fram í fylgd og viðveru kennara. Eru vettvangsferðir mikilvægur hluti skólastarfs á öllum skólastigum sem fara fram í ýmsum kennslugreinum því kennslustofan getur ekki komið í staðinn fyrir vettvangskynningu eins og fjöruferð, á sögustað eða til kirkju..

Það þarf enginn að velkjast í vafa um að Kristnin er snar þáttur í menningu og sögu þjóðarinnar. Kynning og fræðsla um kristni innan skólakerfisins er ein af forsendum skilnings á menningararfi Íslendinga. Menningarlæsi og þekking á ýmis konar táknmáli, hugtökum og tungutaki í bókmenntum, listum og öðrum þáttum menningarinnar er meðal annars undir slíkri fræðslu komin. Í umræðuni um kirkjuferðir og trúarlega fræðslu er oft blandað saman trúarlegri fræðslu og trúboði eða áróðri.

Hér fyrir neðan er góð athugasemd frá manni sem ekki vildi láta nafn síns getið við bloggpistil sem ég birti 2013.

“Æfaforn trúarrit flokkast ekki undir "áróður". Þú þarft að læra Biblíuna hvort sem þú lærir guðfræði, bókmenntir eða mannfræði, svo bara örfá fög séu lesin. Þú telst aldrei meðal fólks með grunnþekkingu samkvæmt stöðlum yfirstéttarinnar hafir þú ekki lesið þessa bók. Meira að segja yfirstéttir Indlands og Kína lesa hana. Biblían er nauðsynleg fyrir skilning á vestrænni sögu, félagsgerð, heimspeki (sérstaklega þýsku heimspekingunum, nær öllum), , listasögu og fagurbókmenntum og telst sjálf á köflum, svo sem Jobsbók, til 100 helstu bókmenntaverka sögunnar, sem bókmenntaverk (ekki sem trúarrit), og því hafa allir vellæsir menn á fagurbókmenntir lesið hana. Biblían er sameign mannkyns. Lestur hennar er sérstaklega mikilvægur fyrir börn innflytjenda sem tilheyra annarri trú, svo þau nái betur að skilja þá menningu sem þau lifa og hrærast í, en fari ekki halloka, alveg eins og maður sem elst upp í löndum Araba en þekkir ekki Kóraninn á engan séns á að komast nokkurn tíman inn í samfélagið eða skilja nágranna sína til fulls. Það kemur trúnni ekkert við, heldur áhrif trúarinnar á menninguna. En eins og allir félagsfræðingar hafa bent á halda þau áhrif áfram löngu eftir, hundruðum ára eftir, að kirkjusókn dvín eða hættir. Trúarbrögð geta jafnvel haft meiri áhrif eftir að þau "hverfa". Við verðum leiksoppar þeirra áhrifa en höfum ekki það val að hafna þeim nema við sjálf lesum frumritin. því það sem er ómeðvitað er sterkar því sem er meðvitað. Vinnusiðferði venjulegs Íslendings og annarra Vesturlandabúa kemur til að mynda úr mótmælendatrú, og um það hefur fjöldi trúlausra félagsfræðinga, svo sem Weber, fjallað. Sá sem ekki þekkir þennan uppruna verður alltaf bara strengjabrúða, og getur ekki sjálfur valið að gangast við honum eða hafna honum. Hann verður bara á valdi hans án þess að vita um hvað málið snýst. Hvort hann sæki kirkju eða ekki kemur málinu ekkert við. Lesið bara Weber... “


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrir börn sem ekki teljast til mótmælendatrúar eru kirkjuheimsóknir ykkar hvorki gleðilegar né uppbyggjandi. þið viljið skapa aðstæður þar sem börnum af annarri trú en ykkar líður illa og eru greinilega ekki hluti af hópnum. Þeim sem ekki þiggja trúboð ykkar bjóðið þið útskúfun og einelti.

Kristnin er vissulega snar þáttur í menningu og sögu þjóðarinnar. Rétt eins og landbúnaður, sjómennska og áfengisdrykkja. Við sendum samt ekki börnin til vinnu í sláturhúsi, túr á togara eða full á sveitaball. Okkur ber að vernda börnin fyrir kirkju, sláturhúsa, togara og sveitaballaferðum menningar og sögusinnaðra.

2+2 og Litla Gula Hænan eru erfið fyrir þessi börn sem þú vilt leiða til kirkju til að veita þeim skilning á menningararfi Íslendinga, menningarlæsi og þekkingu á ýmis konar táknmáli, hugtökum og tungutaki í bókmenntum.

Þið viljið þvinga ykkar siðum upp á börnin, þau sem ekki hafa þroska til að vinna úr því sem fólk sem þau eiga að geta treyst segir þeim.

Trúboð á ekki heima í skólum þar sem börn af öllum trúarsiðum eiga að vera jafn velkomin.

Vagn (IP-tala skráð) 10.12.2016 kl. 13:41

2 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Ætli ég geti ekki sagt að ég sé á öndverðum meiði varðandi því sem þú heldir fram.  Það er eðlilegur hlutur að kenna kristna trú eins og að kenna Íslendingasögurnar og trú landsmannana.  Ferð í kirkjur gætu talist sem vettvangskynning þar sem börnin fá að kynnast aðeins starfi kirkjunnar.  Ég held að það sé mjög lágt hlutfall barna sem má ekki fara í kirkju vegna ólíkrar trúar eða trúleysis foreldrana og ég held að mörg börn sem mega ekki fara vildu fá að fara í slíka heimsókn eða á jólatrésskemmtun.  Það skaðar að mínu mati ekki neitt barn að heyra Guðs orð og það er ekki réttlætanlegt að banna alfarið umræddar heimsóknir innan skólatíma enda þótt lítill hluti skólabarna megi einhverra ástæðna vegna ekki vera með.

Steindór Sigursteinsson, 10.12.2016 kl. 18:01

3 identicon

".. enda þótt lítill hluti skólabarna megi einhverra ástæðna vegna ekki vera með."
Þeim sem ekki þiggja trúboð ykkar bjóðið þið útskúfun og einelti. Og þar sem þið eruð í einfaldleika ykkar og heimsku illmenni þá er ykkur sama. Þið hugsið ekki um börnin, ykkar ákafi í trúboð hefur forgang. Ykkur er sama um þann skaða sem þið valdið hjá þeim sem ekki játa ykkar trú. Þið eruð blindaðir af trúarhita, illmenni að vinna illt verk.

Vagn (IP-tala skráð) 10.12.2016 kl. 23:53

4 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Þetta eru ljót orð sem þú lætur falla í skjóli nafnleyndar.  Kristið fólk sem virkilega er sannkristið vill náunga sínum vel og að fólk fái að komast til trúar á Guð og taki við fórnarverki Jesú Krists sem Guð sendi til jarðarinnar sem lítið barn fætt af Maríu mey. Hann kenndi mönnunum um Guðs veg og tók síðan á sig þá refsingu sem við áttum skilda fyrir misgjörðir okkar og syndir þegar hann dó á krossi.

Steindór Sigursteinsson, 11.12.2016 kl. 20:06

5 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Í fyrstu athugasemd minni (2) skrifaði ég "trú landsmanna" en það átti að vera "trú landsnámsmannana".

Steindór Sigursteinsson, 11.12.2016 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband