Sköpun jarðar og sannleiksgildi Biblíunnar.

Þessir vídeó þættir mynda hluta úr sögu Ísraels frá upphafi sköpunar, til daga Ísraels, til daga Jesú og síðan til okkar daga þar sem Jesús starfar á meðal okkar í dag.

1. Sköpun Jarðar. Í upphafi skapaði Guð Himin og Jörð. Í þessum vídeó þætti rekur Kent Hovind Ph.D. sannanir fyrir því að Jörðin sé ung nokkur þúsund ára gömul, sem styður það að Guð skapaði Jörðina eins og Biblían segir frá og að Jörðin sé þá ekki miljóna ára gömul eins og kennt er í skólunum og í sjónvarpsþáttum. Hvaðan komum við og hvert förum við, skiptir það máli?

Vídeó þættirnir heita: The Age of the Earth - Dr. Kent Hovind - Part 1 of Creation Science

Extraordinary Evidence that Dinosaurs Lived with Man - Dr. Don

Living Dinosaurs in Africa (Full Documentary)

The Demon Flyer Creature of Papua New Guinea (Documentary).

 

 

 

 2. Sódóma og Gómorra. Í þessum vídeó þáttum eru leifar af þessum borgum sýndar þar sem Biblían talar um að þær séu við Dauðahafið í Ísrael. Biblían segir frá því að Lot flýði úr Sódómu með konu sína og tvær dætur áður en Guð eyddi Sódómu, en þarna eru hólar og hæðir sem minna á byggingar, margar með 90 gráðu hornum sem kallast rétt horn, en þau eru að finna á manngerðum byggingum, og á sumum eru greinilega ferkantaðar glugga myndanir og þar eru líka op sem líkjast inngöngum í hús. Á þessu svæði er Jarðvegurinn aska og brennisteinn, en Biblían segir frá því að Guð hafi látið eld og brennistein rigna frá himnum þegar hann eyddi Sódómu og Gómorru.

Ron Wyatt lét efnagreina þennan brennistein og var hann 98% hreinn brennisteinn, en hann finnst í leifunum af öllum þessum borgum kringum Dauða hafið sem Guð eyddi og er þetta eini staðurinn á Jörðinni þar sem þessi 98% hreini brennisteinn finnst, en hann brann við 5000 - 6000 gráður á Fahrenheit sem er um 2700 - 3300 gráðu hiti á Celsius. Hann brann við þennan mikla hita vegna þess að hann inniheldur örlítið af Magnesíum málmi.

En hvað fundu fornleifafræðingar þegar þeir fóru að grafa í Sódómu ???  þeir fundu mannabein ofan í öskunni dreifð yfir allt vestur svæði Sódómu.Einnig hafa fundist um 1.000.000 grafir Kananíta á þessu svæði, en þeir voru íbúar þessa lands.                                                                                                                                                    

Vídeó þættirnir heita:  Revealing God's Treasure - Sodom & Gomorrah og

Sodom & Gomorrah Documentary. TRUE STORY.                                                                                                        

http://vimeo.com/69213153

 

 

3. Í gegnum Rauða hafið. Í þessum vídeó þáttum er eru sýndar leifar af vagnhjólum í á botni Rauðahafsins en Biblían segir frá því að Móses leiddi Ísraelsmenn sem voru þá kallaðir Hebrear út úr Egyptalandi en Faraó elti þá að Rauðahafinu með hermenn hervagna og Guð opnaði Rauðahafið fyrir Ísraelsmönnum þannig að þeir komust  þurrum fótum yfir í Súr-eyðimörk.

En hermenn Faraós fóru á eftir þeim og hafið steyptist yfir þá og þeir fórust allir, en eftir sitja leifar af vagnhjólum jafnvel úr gulli og einnig hafa fundist manna bein og hesthófar.

Vídeó þættirnir heita:  Revealing God's Treasure - The Red Sea Crossing

The Exodus Revealed og The Exodus 

http://vimeo.com/69234784

 

 

4. Sínaí fjall. Í þessum vídeó þætti er sagt frá dvöl Ísraelsmanna hjá Sínaí-fjalli sem er í

Sínaí-eyðimörk eins og Biblían segir frá. Ísraelsmenn gengu í gegnum Rauðahafið inn í Súr-eyðimörk og síðan til Elím þar sem voru 12 vatnslindir (Brunnar) og 70 pálmar en brunnarnir standa ennþá í dag og ennþá fleiri pálmar eru þar í dag. Þeir komu síðan að Sínaí-eyðimörk en fólkið möglaði gegn Móse. Móse sló þá staf sínum á klett einn, eftir boði Drottins, og spratt þá fram vatn úr klettinum. Í dag er að finna á þessum slóðum klett sem er klofin niður. Þar eru ummerki um að vatn hafi runnið niður frá klettinum.

Móses gekk upp á fjallið og fékk boðorðin 10 úr hendi Guðs, en þegar þá fór að lengja eftir Móse gerði Aron bróðir Móse þeim gullkálf og altari fyrir framan hann og Ísraelsmenn færðu Gullkálfinum fórnir. Í dag, við Sínaí fjall, er að finna steinahrúgu með myndum af kálfum sem þeir hafa teiknað, þar sem þeir hafa sennilega sett gull kálfinn á.  Engu er líkara en að toppurinn á Sínaí-fjalli sé í dag, sviðin eftir eldi og reyk, en Biblían segir frá því að Drottinn hafi stigið þar niður í eldi og að reykur hafi stigið upp frá því eins og úr ofni.

 Vídeó þátturinn heitir:  Revealing God's Treasure - Mt. Sinai

http://vimeo.com/69442209

 

5. Fornleifafræðingar grafa eftir sannleika Biblíunnar. Í þessum vídeó þætti sýnir

Dr. Don Patton frá fornleifafundum í Ísrael og í kringum Ísrael frá þeim tíma þegar Jósúa leiddi Ísraelsmenn inn í Kanansland eftir andlát Móse. En Móses leiddi Ísraelsmenn frá Egyptalandi, gegnum Rauða-hafið, yfir eyðimerkur og að Sínaí fjalli og áfram að Nebófjalli, þar sem hann lést eftir 40 ára veru í eyðimörkinni með Ísraelsmönnum. En Móses skipaði Jósúa eftir mann sinn sem síðan leiddi Ísraelsmenn inn í fyrirheitna landið Kanansland, sem síðan hét Ísrael. Í þættinum segir Dr. Don Patton frá því að sannanirnar fyrir því að Ísraelsmenn hafi verið í Egyptalandi fyrir 3400 árum og hafi farið yfir eyðimerkur, yfir ána Jórdan og inn í Ísrael, séu mjög miklar.

Þættirnir heita:   Archaeology: Digging for the Truth of the Bible og

Amazing Archaeological Discoveries Recently Made in Jerusalem

 

6. Sannanir fyrir tilvist Jesú. í  þessum vídeó þætti er fjallað um tilvist Jesú fyrir rúmum 2000 árum, að hann var dæmdur af Pílatusi og negldur á kross. Þeir sem skrifuðu um það voru Matteus og Jóhannes sem skrifuðu Mattheusar og Jóhannesar guðspjöll. Þeir voru sjónarvottar að lífi Jesú. Einnig Markús og Lúkas sem skrifuðu Markúsar og Lúkasar Guðspjöll, en þeir skrifuðu þau eftir vitnisburðum annarra samtímamanna Jesú. Einnig er fjallað um aðra menn utan Biblíunnar sem skrifuðu um krossfestingu Jesú. Þeir voru rómverskir og grískir sagnaritarar þeir minnast jafnvel á jarðskjálfta og myrkur sem var í Galíleu á þeim tíma sem Jesú var krossfestur. En Biblían segir frá því að það kom Jarðskjálfti og myrkur þegar Jesús var krossfestur um það er fjallað í kafla 2 í þessum þætti.   

 Vídeó þættirnir heita:   Historical Evidence for Christ and His Resurrection og

The evidence for the existence of Jesus-full length

http://vimeo.com/29511020

  

                                            .

7. Í þessum vídeó þætti er sýnt frá lækningum sem eiga sér stað í dag, að það eru lagðar hendur yfir fólk og beðið bænar í Jesú nafni til lækninga ýmissa sjúkdóma og meina sem fólk er að glíma við. Sumar af þessum lækningum eiga sér stað úti á götum eða inni í stórmörkuðum.

Í þessum þáttum kemur greinilega fram að Jesús læknar í dag ýmsa sjúkdóma sem fólk er að glíma við og fólk fær frið í sálina og frið í hugann.

 Vídeó þátturinn heitir:  Street healing with Tom Fischer Classic reactions to healing

  

 

                              Nokkur atriði sem styðja biblíulega sköpun.

8. Milliliðir eða Týndir hlekkir. Ekki hefur fundist einn einasti milli liður milli manna og dýra eða á milli dýra sem áttu að sanna þróunarkenningu Charles Darwin´s, um uppruna tegundanna, í þau 150 ár sem grafnir hafa verið upp steingervingar. Svo að þetta eru þá sannkallaðir tíndir hlekkir. Hversvegna eru þessir týndu hlekkir þá milliliðir í kennslubókum þar sem þróunarkenningin er kennd sem staðreynd ?" Charles Darwin skrifaði í bók sinni: Uppruni tegundanna, að ef það fyndust ekki neinir milliliðir milli manna og dýra eða á milli dýra þá væri kenning hans fallin.  

það er vídeó þáttur hérna fyrir neðan um þetta efni: There are no Missing Links! - Kent Hovind

 

9. Apamenn. Þessir svo kölluðu apamenn sem hafa fundist voru annaðhvort veikt fólk, sumir með hryggskekkju eða þá að falsaðar beinagrindur voru settar saman, jafnvel úr tveimur beinagrindum. Gott dæmi um þetta er Lucy sem átti að hafa verið með blendingseinkenni apa og manna, af tegund apa er kölluðust Sunnapar, þeir áttu að hafa veri uppi fyrir 2,7 til 4 milljónum ára. En beinagrindin úr henni var sett saman úr tveimur pörtum sem fundust með 1 1/2 kílómetra millibili.

Síðar var hún rannsökuð betur, þá kom í ljós að þetta var bara beinagrind úr apa.

það eru vídeó þættir hérna fyrir neðan um þetta efni:  

Dr. David Menton: Lucy--She's No Lady -- Clip  og  Dr. David Menton - Lucy she's no lady.

 

 

10. Steingervingar. Steingervingar af sjávar lífverum hafa fundist yfir alla Jörðina, í öllum löndum og uppi á hæstu fjöllum. En Biblían segir frá því að Guð hafa látið koma flóð sem náði yfir alla Jörðina, upp á hæstu fjöll, á dögum Nóa. Það má nefna að flestir steingervingar sem hafa fundist á liðnum 150 árum hafa fundist á lífi í dag, sjávar lífverur og landdýr fyrir utan útdauð dýr.

Það er vídeó þáttur á YouTube um þetta efni,

Það eru vídeó þættir hérna fyrir neðan um þetta efni: 

living fossils - dr. Carl werner, part 1 of 2 origins  og  Fossil Man - Dr. Don Patton.  

 

                                                                                                 

11. Jörðin. Jörðin hægir á sér, það er ekki mikið, en það er nóg til þess að ef við förum nokkur milljón ár aftur í tímann þá hefði Jörðin snúist hraðar, það hratt að hún hefði þeytt öllu frá sér út í geyminn þá hefði ekkert líf þrifist á Jörðinni. En þróunarkenningin á að hafa náð 3500 - 4000 milljón ár aftur í tímann.

Tunglið. Tunglið færist smátt og smátt frá Jörðinni, það er aðeins um 3 1/2 sm. á ári, en það er nógu mikið til þess að ef við förum 1 1/2 milljón ára aftur í tímann, þá hefði tunglið snert jörðina. En þróunarkenningin á að hafa náð 3500 - 4000 milljón ár aftur í tímann.

Sólin. Sólin minnkar um 5 fet á klukkutíma. Það er ekki mikið fyrir svo stóra stjörnu sem er um1.392.000 km (um 109 sinnum þvermál Jarðarinnar). En ef við förum 20 milljón ára aftur í tímann þá hefði Sólin verið svo mikill massi að hún hefði snert Jörðina.

En hvað haldið þið? þróunarkenningin á að hafa náð 3500 - 4000 milljón ár aftur í tímann.

það eru vídeó þættir hérna fyrir neðan um þetta efni: 

Our Created Solar System  og  Our Created Universe.

 

 Spurning ?" Ef til vill gleymist að hafa þessi 3 ofangreindu atriði með í útreikningum í sambandi við Þróunarkenninguna, en fyrstu bakteríurnar áttu að hafa myndast fyrir um 4000 milljónum ára, sem áttu síðan að hafa þróast í frumstæðar sjávar lífverur síðan í lindýr og fiska sem áttu síðan að hafa gengið á land og breyst í skriðdýr, síðan í önnur dýr, apamenn og síðan í menn.

12. Ernst Haeckel (1834-1919) var áhrifamikill þýskur vísindamaður. Árið 1866 birti hann kenningu um fósturvísa þar sem hann hélt því fram að fósturvísar dýra og manna væru nánast eins á frumstigum þeirra. Hugsunin á bakvið þessa kenningu var sú að fyrstu bakteríurnar og einfrumungar hefðu verið nánast eins fyrir 3500 - 4000 miljónum ára og fósturvísar dýra og manna hefðu haldist eins fram á daginn í dag. Þetta hljómaði vel í eyrum þeirra manna sem héldu því fram að allt líf hefði þróast frá bakteríum sem áttu síðan að hafa þróast í frumstæðar sjávar lífverur, síðan í fiska sem áttu síðan að hafa gengið á land og breyst í skriðdýr, síðan í önnur dýr, apamenn og síðan í menn. Gallinn við þessa kenningu Ernst Haeckel var að hann laug, hann falsaði þessar teikningar sem hann birti árið 1874. Það er óskiljanlegt að þessi kenning hans er enn í dag skólabókum.

það er vídeó þáttur hérna fyrir neðan um þetta efni:  Ernst Haeckel: 'An Embryonic Liar'  

Ég sýni hérna að neðan skýringarmyndir frá honum af fósturvísum sem hann teiknaði.

_cid_ii_1440e00617fd2b1a.jpg_cid_ii_1440e01d3d1d4800.jpgTil vinstri er upprunaleg skýringarmynd Haeckel og til hægri efst er skýringarmynd Haeckels

Til hægri eru myndir af fóstrum nokkura dýrategunda og mannsfóstri eins og þau raunverulega líta út.

Margir hafa spurt sig þeirar spurningar ef að Guð er til sem stjórnar öllu, af hverju er þá svona mikil illska á Jörðinni, þar sem stríð eru, þar sem þeir venjulega verða undir sem minna mega sín börn og konur, þar sem milljónir deyja í stríðsátökum sjúkdómum drepsóttum og hungri. 

Biblían segir frá því þegar Guð skapaði Jörðina í upphafi þá hafi allt verið fullkomið á Jörðinni, engin illska hafi verið, engin stríð, sjúkdómar, drepsóttir eða hungur. Biblían segir frá því að höggormurinn, sem var satan, hafi fellt Jörðina þegar hann freistaði Evu og ginnti hana til þess að borða af skilningstré góðs og ills og hún gaf manni sínum að borða með sér, og að Guð hafi bannað henni að taka af því og borða, ella mundi hún deyja. Eftir að þau borðuðu af skilningstré góðs og ills þá höfðu þau skin góðs og ills.

Biblían segir frá því að Guð bölvaði Jörðinni út af því sem þau gerðu, og satan fékk yfirráð yfir Jörðinni, og illska hans komst að þar sem stríð, sjúkdómar, drepsóttir og hungur komust að,

Biblían segir frá því að satan komi til þess að stela slátra og eyða lífi hvers mans.

Biblían segir frá því að Jesús kom í heiminn til þess að frelsa fólk undan yfiráðum satans í lífi hvers mans.

Þess vegna dó Jesú á krossi fyrir þig svo að þú megir öðlast frið í hjartað, svo að hann geti verið með þér á góðum stundum og slæmum, svo að hann geti leitt þig í gegnum erfiðleika og gefið þér eilíft líf með honum á himnum.

Spurning?" Villtu trúa því að lífið á Jörðinni hafi þróast og að maður lifi þessu lífi og deyi og verði grafinn og líf hvers og eins mans endi þá.

Eða villtu trúa því að Guð sá er Biblían talar um hafi skapað allt, Jörðina, himingeiminn og mannfólkið, að maður deyi og verði grafinn, og fari þá til himinsins þar sem Guð ríkir og maður verði með honum um eilífð ef maður hefur tekið við Jesú sem frelsara sínum.                                                

13. Hvað með fegurð, er það eitthvað sem Guð skapaði ? Eða hefur hugtakið fegurð þróast með manninum í milljónir ára ? Hér fyrir neðan er mynd af landslagi með fjöllum, trjám, firði, og í forgrunninum eru allskonar tegundir af blómum. Er þetta skapað af elskandi umhyggjusömum Guði Biblíunnar ? Eða hafa þessi fjöll, fjörður, tré og blóm á þessari mynd orðið til á milljónum ára ? Ég bið þá sem lesa þennan texta, að hugsa málið.

_cid_ii_1440e08d5a543060.jpg

Það er síða á internetinnu um fegurð hérna fyrir neðan:  Friday sunset.

fridaysunset.net/creation/beauty.html

Kannski léstu ferma þig og fórst með Trúarjátninguna og ef tilvill hefurðu gleymt því sem þú lofaðir, að fylgja Jesú Kristi og gera hann að leiðtoga lífs þíns.

Ef svo er farðu þá með Trúarjátninguna Upphátt eða í hljóði. 

TRÚARJÁTNINGIN

Ég trúi á Guð föður, almáttugan skapara himins og jarðar. Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs, og mun þaðan koma, að dæma lifendur og dauða. Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf, amen.

Biddu síðan Jesús að fyrirgefa þér það sem þú hefur ranglega gert (syndirnar), því að Biblían segir að allir menn hafi syndgað og skorti Guð dýrð.

Lestu Biblíuna og byrjaðu á Jóhannesar Guðspjalli síðan Postulasögunni og gakktu á Guðs vegum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband