Sigmundur hefur ekki sagt að hann muni draga kosningaloforð sín til baka.

Núna þegar stjórnmyndunarviðræður eru vel á veg komnar eða jafnvel brátt á enda, þá hefur það valdið talsverðri umræðu að Sigmundur Davíð formaður Framsóknarflokksins hefur lýst því yfir að staða ríkissjóðs sé talsvert verri en hann hafði ímyndað sér fyrir kosningar.  Hefur því verið fleygt fram að hann hefði átt að hafa gert sér grein fyrir því áður en kosningaloforð voru gefin. 

Ég vil segja að Sigmundur kemur mér þannig fyrir sjónir að hann sé mjög heiðarlegur og áreiðanlegur maður, sem vill þjóð sinni vel.  Mér finnst hann virka mjög traustvekjandi, hæglátur og ávallt mjög kurteis í allri framkomu.  Ég tel ekki að Framsóknarflokkurinn undir stjórn Sigmundar hafi gefið loforð um flata niðurfellingu íbúðalána til þess eins að afla flokknum fylgis, ég tel að Sigmundur hafi í einlægni aðeins viljað fólkinu í landinu hið besta þegar hann ásamt flokksmönnum sínum gaf þetta kosningaloforð, og að þarna hafi ekki legið sviksemi að baki.

Sigmundur hefur lýst því yfir að þrátt fyrir að staða ríkissjóðs sé þetta slæm hafi hann ekki ákveðið að taka aftur loforð sitt varðandi niðurfellingu húsnæðislána.  Ég tel að þeir Bjarni og Sigmundur muni móta leið í þessum efnum sem ásættanleg er fyrir fólkið í landinu.

Ég trúi að Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eftir að þeir eru komnir í ríkisstjórn muni færa þjóð sinni betri tíma með bættum efnahag og bættri afkomu fólks.  Ég leyfi mér að telja að sú stefna sem þessir tveir flokkar myndi saman verði til þess að koma hjólum atvinnulífsins á stað aftur þannig að kaupmáttur og lífskjör geti batnað til hins betra.


mbl.is Vandræðalegt fyrir Sigmund Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Amen! Algjörlega sammála þér þarna... nýbúið að kjósa þessa blessuðu vinstristjórn og þau eru strax farinn að benda aftur á aðra, ah alveg rétt þau gera víst lítið annað en að hækka skatta og kenna öllum öðrum um. Katrín Júlíusdóttir ætti að sjá að sér og skammast sín fyrir það sem hún hefur gert eða ekki gert öllu heldur. Ég treysti Sigmundi fullkomnlega til að laga stöðu okkar.. við þurfum heiðarlegt fólk þarna við stjórnvölinn!

Davíð (IP-tala skráð) 14.5.2013 kl. 22:01

2 identicon

" Ég treysti Sigmundi fullkomnlega til að laga stöðu okkar.. við þurfum heiðarlegt fólk þarna við stjórnvölinn!"

 Á þetta að vera brandari?? Sjallar og Framsókn heiðarlegra en Samfylkingin og V. Grænir? Guð hjálpi Íslandi.

Siggi (IP-tala skráð) 14.5.2013 kl. 23:45

3 Smámynd: Viggó Jörgensson

Finnst þér það traustvekjandi að ljúga því í blaðaviðtölum. 

Að hann hefði doktorsprófgráðu sem hann hafði EKKI?

Ekki einu sinni heldur mörgum sinnum. 

Finnst þér það trúverðugt að lofa 300 miljarða lækkun húsnæðisskulda.

ÁN ÞESS AÐ GJÖRÞEKKJA RÍKISFJÁRMÁLIN OG STÖÐU ÞJÓÐARBÚSINS GJÖRSAMLEGA?

Betur en fjölda fingranna á höndum sér. 

Viggó Jörgensson, 14.5.2013 kl. 23:50

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vona að þú hafir rétt fyrir þér Steindór, við eigum ekki annara kosta völ en að vona það besta. Ég gerði það við síðustu ríkisstjórnarmyndun og þvílík vonbrigði sem það hafði í för með sér.  Þar var allt að mestu svikið, þó sú stjórn haldi núna að hún geti skrifað söguna upp á nýtt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.5.2013 kl. 18:01

5 Smámynd: Steindór Sigursteinsson

Komdu sæll Viggó Jörgensen.

Samkvæmt frétt í Pressunni 20.04.2013-19:21 kemur fram að Sigmundur hafi sagt að hann hafi hafið doktorsnám  en ekki lokið því. Og Kolbeinn nokkur og Margrét sem voru samtíma honum í námi segja að hann hafi ekki logið til um menntun sína.  Varðandi lækkun húsnæðislánanna þá finnst mér þetta loforð Framsóknarmanna vera frekar hæpið enda aðhyllist ég stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum.  En ég tel að Sigurmundur og flokksfélagar hans hafi ekki gefið þetta loforð með svik í huga heldur hafi þeir viljað koma sem mest til móts við fólk í skuldavanda.

Steindór Sigursteinsson, 15.5.2013 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband